sindri-robert.jpg

Vinaskákfélagið lagði Skákdeild Hauka að velli í viðureign félaganna sem fram fór í Vin í gær. Lokatölur urðu 39-33 heimamönnum í Vin í vil. Róbert Lagerman fór mikinn og hlaut 9,5 vinning af 11 mögulegum. Ágúst Sindri Karlsson var bestur gestanna með 11 vinninga í 12 skákum. Fyrstu umferð lýkur á morgun með tveimur viðureignum.vin-haukar.jpg

 

Bestum árangri heimamanna náðu:

  • Róbert Lagerman 9,5 v. af 11
  • Sævar Bjarnason 8,5 v. af 11
  • Ingi Tandri Traustason 7 v. af 11
  • Arnljótur Sigurðarson 6 v. af 12
  • Hrannar Jónsson 5 v. af 11

Bestum árangri gestanna náðu:

  • Ágúst Sindri Karlsson 11 v. af 12
  • Sverrir Þorgeirsson 10 v. af 12
  • Auðbergur Magnússon 5 v. af 12

Nánari úrslit má nálgast í meðfylgjandi töflu (hægt að stækka)

vinaskakfelagi_-haukar.jpg
Röðun/úrslit fyrstu umferðar

  • Taflfélag Bolungavíkur – Skákdeild Hugins b-sveit 39½-38½
  • Skákdeild Hauka – Vinaskákfélagið 33-39
  • Skakfélags Selfoss og nágrennis – Taflfélag Reykjavíkur (21. ágúst, kl. 20 í Fischersetrinu)
  • UMSB – Taflfélag Reykjavíkur unglingasveit 33-39
  • Taflfélag Vestmannaeyja – Skákfélagið Huginn a-sveit 16½-55½
  • Taflfélag Garðabæjar – Skákdeild Fjölnis 18-56
  • Skákfélag Íslands – Víkingaklúbburinn (21. ágúst, kl. 20 í SÍ)
  • Skákfélag Akureyrar – Skákfélag Reykjanesbæjar 33-39