Hermann Aðalsteinsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór sl. mánudagskvöld á Húsavík. Hermann fékk 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Tefldar voru skákir með 5 mín umhugsunartíma á mann og tvöföld umferð.

Hermann A.

Lokastaðan.

  1. Hermann Aðalsteinsson  5,5 af 6
  2. Hlynur Snær Viðarsson   4.5
  3. Sigurbjörn Ásmundsson  1
  4. Sam Rees                        1

Næsta skákæfing fer fram mánudagskvöldið 19. október á Húsavík, en það er síðasta æfing fyrir Framsýnarmótið sem fram fer helgina 23-25 október á Laugum.