Íslandsmót skákfélaga fyrri hluti fór fram um helgina í MH í Reykjavík. A-liði Goðans var óvænt boðið sæti í 2. deild sem losnaði nokkrum dögum fyrir mót, sem við tókum, þó svo að líkurnar á því að hanga upp í deildinni fyrir fram, væru kanski ekki miklar. En gríðarlega flott úrslit hjá A-liðinu, sigur gegn Breiðablik og jafntefli gegn Skákgenginu og SFÍ er A-liðið í 4. sæti í deildinni og þarf ekki nema 2 punkta í viðbót, af 6 mögulegum, til þess að vera nokkuð öruggir um að halda sæti í deildinni fyrir næsta keppnistímabil. Algjörlega frábært.
B-liðinu gekk ágætlega í 4. deildinni og er sem stendur í 8. sæti með 4 punkta og 15, 5 vinninga. Það var á brattann að sækja hjá C-liðinu sem er í 21. sæti með 1 punkt og 9,5 vinninga.
Ádám Gulyás átti verulega sterka frammistöðu í A-liðinu. Hann fékk 3 vinninga af 4 mögulegum. Rúnar Ísleifsson og Smári Sigurðsson lönduðu 2,5 vinningum og fóru taplausir í gegnum þennan fyrri hluta. Kristján Ingi Smárason vann sína einu skák sem hann tefldi fyrir A-liðið en Kristján fékk alls 2,5 vinninga á mótinu.

Hilmar Freyr Bigisson og Ingi Hafliði Guðjónsson fengu 3 vinninga af 4 mögulegum í B-sveitinni. Hermann Aðalsteinsson og Bergmann Óli Aðalsteinsson fengu 2,5 vinninga og Óskar Páll Davíðsson vann báðar skákirnar sem hann tefldi

Björn Gunnar Jónsson vann báðar sínar skákir í C-liðinu. Lárus Sólberg Guðjónsson, Sighvatur Karlsson, Viðar Njáll Hákonarson og Hannibal Óskar Guðmundsson fengu einn vinning hver. Nýliðarnir Martin Saier, Tomasz W. Tomasson Wiktor og Trausti Ólafsson fengu hálfan vinning.

Seinni hlutinn er á áætlun snemma í mars og þá kemur í ljós hvort að A-liðinu tekst að halda sér upp. Það eru talsverðar líkur á því.
Myndirnar hér að neðan tók Tómas Tandri og hann tók heilan haug af myndum sem Sjá allar hér








