Tún á Húsavík.
Kristján Ingi Smárason varð efstur á skákæfingu sem fram fór sl. mánudagskvöld á Húsavík. Kristján fékk þrjá vinninga af 3 mögulegum. Hermann Aðalsteinsson varð annar með 2 vinninga og nýliðinn Guðjón Ingi Eide Sævarsson varð þriðji þegar hann vann sína fyrstu skák hjá félaginu. Sigurbjörn Ásmundsson varð neðstur án vinninga.

Tímamörk voru 20 mín á mann og einföld umferð var tefld.
Næsta skákæfing fer ekki fram fyrr en 19. október vegna Íslandsmóts skákfélaga sem fram fer um komandi helgi í MH.
