Simon Williams

Breska skákblaðið Chess.co.uk birtir í maí útgáfu sinni sem kom út í dag, grein Simons Williams um Afmælismót Goðans sem fram fór í Skjólbrekku 13-16 mars sl.

Í greininni fer Simon lofsamlegum orðum um mótið og okkur Goðamenn auk þess sem hann birtir þrjár áhugaverðar skákir úr mótinu. Greinin er samtals 5 blaðsíður (bls 12-16) og má skoða hana og reynar allt blaðið, hér fyrir neðan

„The GingerGM journeyed to Glorious Godinn!“

Því miður náðist ekki að koma leiðréttingum inn í greinina áður en blaðið fór í prentun og á það aðallega við myndatextana. Það mun verða leiðrétt í júní útgáfu blaðsins.