Áskell Örn Kárason og Stefán Steingrímur Bergsson urðu efstir á Minningarmóti Sigga Dan sem fram fór í félagsheimilin Hnitbjörgum á Raufarhöfn í gær. Báðir fengu þeir 8 vinninga af 9 mögulegum en Áskell varð örlítið hærri á oddastigum. Gauti Páll Jónsson varð svo í þriðja sæti með 7 vinninga.


21 keppandi tók þátt í mótinu og komu þeir víða að af landinu, m.a. úr Reykjavík, Blöndósi, Akureyri, Egilsstöðum og Þingeyjarsýslu. Teflar voru 9 umferðir með 5+3 tímamörkunum. Hermann Aðalsteinsson formaður skákfélagsins Goðans var mótsstjóri og flutti við upphaf móts samantekt um feril Sigurðar Daníelssonar við skákborðið og lífsferil hans, en Sigurður var tónlistarkennari víða um land og hann málaði einnig. Einnig voru nokkrir verðlaunagripir sem Sigurður vann til á hinum ýmsu skákmótum í gegnum tíðina til sýnis, en skákfélagið Goðinn hefur tekið að sér að varðveita þá.
Að móti loknu var boðið upp á kaffi og Elínborg Sigurgeirsdóttir fyrrverandi kona Sigurðar og Gígja Snædal dóttir hennar spiluðu nokkur lög á píanó og þverflautu.

Lokastaðan á mótinu
Hér fyrir neðan má skoða nokkrar myndir frá mótinu.


















