Ný FIDE skákstig komu út í dag sem gilda 1. ágúst. Enginn af félagsmönnum tóku þátt í kappskákmótum í júlí mánuði en nokkrir tefldu á Sumarskákmóti Goðans sem var atskákmót og Minningarmóti Sigga Dan sem var hraðskákmót og þá verða eðlilega breytingar á þeim stigum. Rúnar Ísleifsson hækkaði mest eða um 18 stig atskákstig.


Óhætt er að segja að Segrio Garcia Fernandez hafi heldur betur nelgt sig inn á atskákstigalistann því hann var að vinna sér inn sín fyrstu atskákstig eða 1828 stig eftir mjög góða frammistöðu á Sumarskákmóti Goðans. Hann vann sér einnig inn sín fyrstu hraðskákstig sem eru 1644. Saier Martin kemur einnig nýr inn á hraðskákstigalistann með 1648.
Atskákstig 1. ágúst 2026
Rúnar Ísleifsson 1907 +18
Segrio Garcia Fernandez 1828 nýtt
Hermann Aðalsteinsson 1640 +4
Ævar Ákason 1656 +1
Aðrir lækkuðu eða stóðu í stað.
Hraðskákstig 1. ágúst 2026
Saier Martin kemur nýr inn á hraðskákstigalistinn með 1648 og Segrio Garcia Fernandez einnig eftir fínan árangur hjá þeim báðum á Minningarmót Sigga Dan, en aðrir Goðamenn lækkuðu á stigum á því móti.
Saier Martin 1648 nýtt
Sergio Garcia Fernandez 1644 nýtt
Áhugasamir geta flett upp á sjálfum sér og skoðað breytingar ef einhverjar eru hér.
