Atkvöld hjá GM Helli í Mjóddinni mánudaginn 24. febrúar

Skákfélagið GM Hellir heldur atkvöld mánudaginn  24. febrúar 2014. og hefst mótið kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með fimmtán mínútna umhugsun. Teflt er í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni. 

Sigurvegarinn á atkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran. Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær máltíð fyrir einn á Saffran. Þar eiga allir jafna
möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).