Atskákmót Reykjavíkur sem jafnframt er atskákmót Hugins, suðursvæði fer fram mánudaginn 28. nóvember nk.  Mótið fer fram í félagsheimili Hugins, Álfabakka 14a í Mjódd. Tefldar verða 6 umferðir með Svissnesku-kerfi og hefur hvor keppandi 10 mínútur á skák + fimm sekúndur á hvern leik. Mótið hefst kl. 19:30 og verður reiknað til atskákstiga. Verði tveir jafnir í baráttunni um annan hvorn titilinn verður teflt tveggja skáka hraðskákeinvígi.  Verði jafnt að því loknu verður hraðskákbráðabani. Verði fleiri en tveir jafnir verður tefld einföld umferð, hraðskák. Verði enn jafnt, þá bráðabani. Verði fleiri en tveir jafnir verður tefld einföld umferð, hraðskák. Verði enn jafnt þá bráðabani.

Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Guðmundur Kjartansson og atskákmeistari Hugins er Hjörvar Steinn Grétarsson.

Verðlaun:

1. 15.000

2. 8.000

3. 4.000

Þátttökugjöld:

16 ára og eldri: 1000 kr

15 ára og yngri: 500