Barna- og unglingaæfingar Skákfélagsins Hugins í Mjóddinni hefjast aftur eftir sumarfrí mánudaginn 3. september 2018.

Æfingarnar byrja kl. 17:15 og þeim lýkur yfirleitt rétt fyrir kl. 19.

Æfingarnar eru opnar öllum 15 ára og yngri en skipt verður í tvo flokka eftir aldri og styrkleika á flestum æfingum.

Engin þátttökugjöld.

Æfingarnar verða haldnar í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangur er milli Lyfjaval í Mjódd og Subway en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.

Á æfingunum verða 5 eða 6 umferðir með umhugsunartíma 10 eða 7 mínútur. Einnig verður farið í dæmi og endatöfl eins og tíma vinnst til. Jafnframt verður þegar tímabilið er komið vel af stað í boði kennsla fyrir félagsmenn utan hefðbundins æfingatíma.

Umsjón með æfingunum hefur Vigfús Ó. Vigfússon