Borgarskákmótið fer fram mánudaginn 11. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Reykjavíkurfélögin Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn að mótinu.
Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er öllum opið og þátttaka ókeypis
Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is.
Þetta er í 28. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Hjörvar Steinn Grétarsson, sem þá tefldi fyrir Íslandsbanka.
Verðlaun:
- 30.000 kr.
- 20.000 kr.
- 10.000 kr.