Borgarskákmótið fer fram mánudaginn 11. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Reykjavíkurfélögin Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn að mótinu.

Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er öllum opið og þátttaka ókeypis

Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is.

Þetta er í 28. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Hjörvar Steinn Grétarsson, sem þá tefldi fyrir Íslandsbanka.

Verðlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.