Borgarskákmótið fer fram mánudaginn 11. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn, að mótinu, eins og þau hafa gert síðustu ár. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is

Einnig er hægt að skrá sig í í síma 866 0116 Vigfús og 899 9268 (Björn). Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Þetta er í 28. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Hjörvar Steinn Grétarsson, sem þá tefldi fyrir Íslandsbanka.

Verðlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.