11.3.2010 kl. 21:23
Breyting á æfinga og mótaáætlun.
Á Stjórnarfundií gær gerði stjórn breytingu á æfinga og mótaáætlun félagsins. Helsta breytingin er sú að aðalfundur skákfélagsins Goðans er færður fram um eina viku. Aðalfundurinn verður miðvikudagskvöldið 24 mars nk. á Húsavík.
Dagskrá aðalfundarins verður send út með fundarboðinu um helgina.
Æfinga og mótaáætlunin er sem hér segir:
17. mars Skákæfing Húsavík
24. mars Aðalfundur Goðans Húsavík
31. mars Skákæfing Stórutjörnum
7. apríl Héraðsmótið Laugar
14. apríl Héraðsmótið Laugar
16-18 apríl Skákþing Norðlendinga Gamla Bauk Húsavík.
21. apríl Skákæfing Laugum
28. apríl Skákæfing Húsavík Lokahóf Goðans.