Goðinn styrkir skáksveit Borgarhólsskóla.

Skáksveit úr Borgarhólsskóla tekur þátt í Íslandsmóti Barnaskólasveita í skák, sem haldið verður sunnudaginn 21 mars nk. í Vetrargarðinum í Smáralind.  Af því tilefni styrkti skákfélagið Goðinn alla keppendur Borgarhólsskóla til þátttöku í mótinu.

Goðinn Ýmislegt 002
 

Snorri Hallgrímsson, Valur Heiðar Einarsson, Hlynur Snær Viðarsson og Ágúst Már Gunnlaugsson verða fulltrúar Borgarhólsskóla á Íslandsmóti Barnaskólasveita nk. sunnudag. Þetta verður í annað skiptið sem skáksveit úr Borgarhólsskóla tekur þátt í mótinu og er hún eins skipuð og í fyrra, en þá endaði sveitin í 10. sæti af 40 liðum. 

Það var Hermann Aðalsteinsson formaður sem afhenti keppendum Borgarhólsskóla styrkinn í dag. Skákfélagið Goðinn á einmitt 5 ára afmæli í dag, 15 mars og var því styrkveitingin glaðningur í tilefni dagsins.  H.A.