IMG_2137Davíð Kjartansson (2331) og Sævar Bjarnason (2095) og  eru efstir og jafnir með fullt hús að lokinni fjórðu umferð Meistaramóts Hugins (suðursvæði) sem fram fór í kvöld. Þeim fylgja svo eftir sex skákmenn sem allir eru með 3v. Í kvöld vann Davíð Stefán á efsta borði og á öðru borði vann Sævar Jón Eggert. Af öðrum athyglisverðum úrslitum má nefna að Bárður vann Sigurð, Felix vann Óskar Long og Þorsteinn vann Heimir.

Fjórða umferð fer fram á morgun og hefst kl. 19.30. Þá mætast m.a.   Sævar og Davíð í uppgjöri efstu manna og á öðru borði tefla Vigfús og Stefán