IMG_2163FIDE-meistarinn Davíð Kjartansson (2331) vann alþjóðlega meistarann Sævar Bjarnason (2095) í uppgjöri efstu manna í fimmtu umferð Meistaramóts Hugins, sem fram fór í kvöld og er núna einn efstur með fullt hús. Á öðru borði vann Vigfús Stefán og á fimmta borði gerðu Sigurður og Felix jafntefli en önnur úrslit voru frekar eftir bóknni. Fjórir keppendur hafa 4 vinninga en það eru auk Sævars þeir Loftur Baldvinsson (1986), Vigfús Ó. Vigfússon (1962) og Ólafur Kjartansson (1997).

Sjötta umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars: Davíð-Ólafur og Vigfús-Sævar.