Dawid Kolka sigraði á hraðkvöldi Hugins sem, haldið var 25. april sl. Dawid fékk 7,5v af 10 mögulegum og nældi sér í sinn fyrsta sigur á þessum skákkvöldum. Annar var Vigfús Ó. Vigfússon með 7v og þriðji Sigurður Freyr Jónatansson með 6v.. Það voru bara sex sem tóku þátt að þessu sinni og var tefld tvöföld umferð með umhugsunartímann 4 minútur + 2 sek. á hvern leik og gekk á ýmsu. Segja má að úrslitin hafi ráðist í sjöundu umferð þegar Dawid vann Vigfús í spennandi skák.. Þeir áttu að vísu báðir eftir að tapa í níundu umferð, Vigfús fyrir Herði og Dawid fyrir Hjálmari svo það jafnaðist út. Dawid fékk sem sigurvegari að spreyta sig á því að draga í happdrættinu og upp kom miði Hjálmars Sigurvaldasonar. Báðir völdu þeir pizzu frá Dominos í verðlaun.

Næsta skákkvöld verður hraðkvöldi mánudaginn 2. mai nk.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

  1. Dawid Kolka, 7,5v/10
  2. Vigfús Ó. Vigfússon, 7v
  3. Sigurður Freyr Jónatansson, 6v
  4. Hjálmar Sigurvaldason, 5,5v
  5. Hörður Jónasson, 4v
  6. Björgvin Kristbergsson