21.4.2010 kl. 11:20
Erlingur Þorsteinsson er genginn í Fjölni.
Erlingur Þorsteinsson er búinn að ganga frá félagskiptum úr Goðanum yfir í Fjölni, eftir tæplega eins árs veru hjá okkur.
Erlingur þorsteinsson.
Um leið og við óskum honum góðs gengis hjá Fjölni, þökkum við honum fyrir góð kynni í vetur og þátttöku hans á skákæfingum og skákmótum hjá okkur í vetur. Það munaði mikið um þátttöku hans með A-liðinu í Íslandsmótinu þar sem hann tefldi allar skákirnar 7 á 1. borði. H.A.