Eyþór Kári Ingólfsson og Kristján Davíð Björnsson urðu skólameistarar í skák í Stórutjarnaskóla sl. miðvikudag, þegar skólamótið fór þar fram. Eyþór vann eldri flokkinn með 4 vinningum af 5 mögulegum, en Kristján vann allar sínar skákir fimm að tölu í yngri flokknum. tímamörk voru 10 mín og tefldar voru fimm umferðir í báðum aldursflokkum.
Lokastaðan í eldri flokki.
Eyþór Kári Ingólfsson 4 af 5
Arnar Ólafsson 3,5
Snorri Már Vagnsson 3
Pétur Ívar Kristinsson 2,5
Elín Hlinadóttir 2
Aron 0
Efstu í yngri flokki:
1. Kristján Davíð Björnsson 5 af 5 !
2. Ari Ingólfsson 4
3. Haraldur Andri Ólafsson 3
4. Marge Alavere 3
Hér má sjá heildarúrslit í yngri flokki: Stórutjarnaskóli 2015
Eyþór, Arnar, Kristján og Ari hafa því unnið sér keppnisrétt á sýslumótinu í skólaskák sem fram fer í Litlulaugaskóla fimmtudaginn 16. apríl nk kl 16:00. Myndir: Jónas Reynir Helgason.