Heimir Páll efstur í eldri flokki og Jón Hreiðar í yngri flokki

Heimir Páll Ragnarsson sigraði í eldri flokki með 4,5v í fimm skákum og tryggði Heimir Páll sigurinn með jafntefli við Alec Elías í lokaumferðinni. Annar var Felix Steinþórsson með 4v og þriðji var Alec Elías Sigurðarsson með 3,5v. Jón Hreiðar Rúnarsson sigraði örugglega með fulli húsi 5v í jafn mörgum skákum í yngri flokki. Þetta er í fyrsta sinn sem Jón Hreiðar vinnur yngri flokkinn og fær hann að spreita sig í þeim eldri á næstu æfingu að launum. Annar var Stefán Orri Davíðsson með 4v. Næstir komu svo Alexander Már Bjarnþórsson og Adam Omarsson með 3v en Alexander hafði þriðja sætið á hálfu stigi þótt hann hefði tapað fyrir Adam í fyrstu umferð.

Þátttakendur að þessu sinni voru: Heimir Páll Ragnarsson, Felix Steinþórsson, Alec Elías Sigurðarson, Birgir Ívarsson, Sindri Snær Kristófersson, Óskar Víkingur Davíðsson, Axel Óli Sigurjónsson, Oddur Þór Unnsteinsson, Baltasar Máni Wedholm, Jóhannes Þór Árnason, Halldór Atli Kristjánsson, Egill Úlfarsson, Alexander Jóhannsson, Ólafur Tómas Ólafsson,  Jón Hreiðar Rúnarsson, Stefán Orri Davíðsson, Alexander Már Bjarnþórsson, Adam Omarsson, Birgir Logi Steinþórsson, Brynjar Haraldsson, Sævar Breki Snorrason, Arnar Jónsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Aron Kristinn Jónsson, Gabríel Sær Bjarnþórsson og Þórður Hólm Hálfdánarson.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 24. mars nk. og hefst kl. 17.15 og verður þá einnig skipt í tvo flokka. Stelpuæfingar eru svo á hverjum miðvikudegi kl. 17.15. Á æfingunum hjá stelpunum er einnig ágætis þátttaka eins og hjá strákunum. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.