Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sem tefldi fyrir Hlaðbæ-Colas sigraði á 33. Borgarskákmótinu sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 21. ágúst sl. Helgi vann fyrstu sex andstæðinga sína og gerði jafntefli við Braga Þorfinnsson  (Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar) í lokaumferðinni og lauk móti með 6,5 vinninga. Þetta er í fjórða  sinn sem Helgi Áss sigrar á mótinu en fyrst vann hann mótin 1992 og 1994. Síðan kom langt hlé og næsti sigur kom ekki fyrr en 2016 og svo aftur í ár 2018. Það er svo spurning hvort Helgi láti líða jafn langan tíma að næstu vinnings períódu.

Það var hart barist um næstu sæti en að lokum voru fjórir keppendur efstir og jafnir með 5,5v í 2. – 5. sæti en það voru Dagur Ragnarsson (Íslandsstofa), Bragi Þorfinnsson, Jón Viktor Gunnarsson (Stilling) og Sigurður Daði Sigfússon (HS Veitur).

Tíu titilhafar tóku þátt í mótinu og fyrirfram máttti búast við harðri keppni þeirra á milli um sigur á mótinu. Sú varð líka raunin því þeir tóku sex efstu sætin. Næstu þrjú sæti skipuðu þrír titillausir keppendur af yngri kynslóðinni allir með 5v en það voru Gauti Páll Jónsson (Góa/Linda), Örn Leó Jóhannsson (Ís-spor) og Helgi Brynjarsson (BYKO).

Mótið í ár var vel sótt en alls tóku 60 keppendur þátt að þessu sinni. Eins og í fyrra fór skráning í mótið hægt af stað og margir skráðu sig seint og sumir ekki fyrr en á skákstað. Fimmtíu og tvö fyrirtæki skráðu sig til leiks og er það mesta þátttaka af þeirra hálfu í mörg ár. Fjöldi skákmann fór ekki fram úr fjölda fyrirtækja fyrr en á hádegi á keppnisdegi og þegar upp var staðið voru keppendur 8 fleiri en fyrirtækin.

Meira en sjötíu og fimm ára aldursmunur var á yngsta og elsta keppenda mótsins þeim Bjarti Þórissyni (2009) og Magnúsi V. Péturssyni (1932) (Talnakönnun), sem á árum áður var þekktur knattspyrnudómari og stóðu þeir báðir fyrir sínu. Yngri skákmenn voru nokkru færri en oft áður en nú er hópur að tafli á EM ungmenna.

Af stúlkunum stóð Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (Borgun) (4v) og Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir (Hamborgarabúlla Tómasar) (4v) sig best. A.m.k. önnur þeirra er að undarbúa sig fyrir þátttöku í Ólympíuskákmótinu í Batumi þannig að það er í nægu að snúast hjá þeim á næstunni.

Nokkur fjöldi áhorfenda var á mótinu, þá aðalega túristar sem staddir voru í Ráðhúsinu og fylgdust spenntir með af pallinum. Þeir voru hins vegar eitthvað ragari við að grípa í tafl fyrir mót en síðustu ár og örfáir báðu um að fá að tefla á lausum borðum meðan á móti stóð sem var auðsótt.

Skákfélagið Huginn vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem tóku þátt, Reykjavíkurborgar fyrir að hýsa mótið, Taflfélagi Reykjavíkur fyrir samstarfið og síðast en ekki síst þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu mótið.

Lokastaðan í chess-results:


 

Röð Nafn Stig Fyrirtæki Vinn. TB1
1 GM Gretarsson Helgi Ass 2523 Hlaðbær Colas 6,5 31,5
2 FM Ragnarsson Dagur 2155 Íslandsstofa 5,5 33,5
3 GM Thorfinnsson Bragi 2319 Starfmannaf. Reykjavíkurborgar 5,5 33
4 IM Gunnarsson Jon Viktor 2478 Stilling 5,5 31,5
5 FM Sigfusson Sigurdur 2124 HS Veitur 5,5 26
6 FM Johannesson Ingvar Thor 2378 Forum lögmenn 5 34
7 Jonsson Gauti Pall 2041 Góa/Linda 5 29,5
8 Johannsson Orn Leo 2172 ÍS-Spor 5 28,5
9 Brynjarsson Helgi 1982 BYKO 5 28
10 IM Thorfinnsson Bjorn 2410 Landsvirkjun 5 27
11 Eliasson Kristjan Orn 1825 Kaupfélag Skagfirðinga 5 22,5
12 FM Lagerman Robert 2282 Sjóvá 4,5 32,5
13 CM Halldorsson Halldor 2181 Grillhúsið Tryggvagötu 4,5 30,5
14 Petursson Gudni 2124 Kópavogsbær 4,5 28
15 Bergsson Stefan 2129 Íslandspóstur 4 31
16 FM Gretarsson Andri A 2274 ÍTR 4 31
17 Ragnarsson Johann 2060 Húsasmiðjan 4 28,5
18 Runarsson Gunnar 2019 Hvalur hf 4 28
19 Maack Kjartan 2030 Slökkvilið höfuðborgarsv. 4 27,5
20 Bjornsson Bjorn Freyr 2155 Borgarplast 4 27
21 Berg Runar 2091 4 26
22 Bjornsson Eirikur K. 1974 Tapas barinn 4 26
23 Gudfinnsson Saebjorn 1931 Ísaga/AGA 4 25,5
24 Stefansson Veturlidi Thor 1784 Suzuki bílar 4 24,5
25 Sigurdsson Snorri Thor 1862 N1 4 24
26 Fridjonsson Julius 2076 Nóí Síríus 4 24
27 Johannsdottir Johanna Bjorg 1968 Borgun 4 24
28 Fridthjofsdottir Sigurl. Regina 1717 Hamborgarabúlla Tómasar 4 23,5
29 Sigurdsson Arnljotur 1728 Verkís 4 20,5
30 Kristinsson Ogmundur 1956 Gámaþjónustan 3,5 25,5
31 Andrason Pall 1938 Ölstofan 3,5 24
32 Valtysson Thor 1972 Hlölla bátar 3,5 23
33 Ingvason Johann 1977 Sorpa 3 28
34 Briem Stefan 2038 Iceland Travel 3 27,5
35 Hauksson Hordur Aron 1857 Eignamiðlun 3 27
36 Haile Batel Goitom 1314 Eimskip 3 24,5
37 Bjornsson Bjorn Brynjulfur 1451 Mjólkursamsalan 3 23,5
38 Valdimarsson Johann 1588 ASÍ 3 23,5
39 Magnusson Thorlakur 1662 Brim hf 3 23
40 Angantysson Asgrimur 1613 Guðmundur Arason Smíðajárn 3 22
41 Thorsson Pall 1685 3 22
42 Gunnarsson Helgi Petur 1650 Valitor 3 21,5
43 Haraldsson Sigurjon 1723 Olís 3 21,5
44 Haraldsson Gunnar Orn 1672 Kvika banki 3 19,5
45 Davidsson Oskar Vikingur 1851 Hreyfill 3 17,5
46 Ingason Sigurdur 1738 Grafía 2,5 23
47 Olafsson Kristmundur Thor 1646 KFC 2,5 22,5
48 Kjartansson Gudfinnur 1826 Samhentir-Kassagerð 2,5 22
49 Jonasson Hordur 1382 KRST Lögmannsstofa 2,5 13,5
50 Thorisson Benedikt 1331 KPMG 2 24
51 Holm Fridgeir K 1732 Verkalýðsf. Hlíf 2 23
52 Bjarnason Larus H 1523 Reykjavíkurborg 2 20,5
53 Kristbergsson Bjorgvin 1174 2 20
54 Sigurvaldason Hjalmar 1489 Efling stéttarfélag 2 19,5
55 Petursson Magnus V. 1551 Talnakönnun 2 18
56 Thorisson Bjartur 0 2 17,5
57 Ludviksson Magnus Thorlakur 1227 2 17
58 Helgadottir Idunn 1063 1,5 16
59 Gestsson Gunnar 0 1 15,5
60 Johannesson Petur 0 0 17,5