Borgarskákmótið fer fram mánudaginn 21. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn, að mótinu, eins og þau hafa gert síðustu ár. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taki þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hægt að skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Skráningu á skákstað verður lokað kl. 15:50 fyrir mótið. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik. Þetta er í 33. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Arnar Gunnarsson, sem þá tefldi fyrir Brim. Upplýsingar um skráða keppendur eru hér.

Verðlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.