Hermann og Heimir efstir á æfingu.

Hermann Aðalsteinsson og Heimir Bessason urðu efstir á skákæfingu kvöldsins sem fram fór á Húsavík. Þeir hlutu báðir 5 vinninga hvor af 7 mögulegum. Tefldar voru skákir með 10 mín á mann.

Úrslit kvöldsins:

1-2. Hermann Aðalsteinsson      5 af 7
1-2. Heimir Bessason                 5
3-4. Sigurbjörn Ásmundsson      4
3-4. Sighvatur Karlsson              4
5-6. Hlynur Snær Viðarsson        3,5
5-6. Snorri Hallgrímsson             3,5
7.     Valur Heiðar Einarsson       2
8.     Róbert Hlynur Baldursson   1

Ekki hefur verið ákveðið hvar og hvenær næsta skákæfing verður.