Miðgarður 4 á Húsavík,eða bara Tún. Aðastaða Goðans er í kjallaranum í norðurhluta hússins og er gegnið inn um grænu hurðina
Síðasta skákæfing skákársins 2025-26 fór fram í Túni sl. mánudagskvöld 1. júní. Vel var mætt á æfinguna þar sem 10 keppendur mættu til leiks. Tefldar voru 5 umferðir með 10 mín umhugsunartíma á mann. Svo fór að Hermann Aðalsteinsson og Smári Sigurðsson urðu efstir með 4 vinninga og Viðar Njáll Hákonarson varð efstur á oddastigum af fjölmörgum sem fengu 3 vinninga.
Lokastaðan:
Næstu viðburðir hjá Goðanum eru sumarskákmót Goðans 2026 sem stefnt er að fari fram mánudagskvöldið 29. júni í Túni. Svo er Minningarskákmót um Sigurð Daníelsson á dagskrá 11. júlí á Raufarhöfn.
Nánar verður skýrt frá þessum mótum þegar nær dregur.
