Frá skákæfingu í Túni
Sumarskákmót Goðans 2026 fer fram í Túni, Miðgarði 4, á Húsavík mánudagskvöldið 29. júní og hefst kl 20:00. Áætluð mótslok eru um kl 22:30.
Tefldar verða 7 umferðir með 10+3 timamörkum. Mótið er reiknað til atskákstiga hjá Fide og er opið öllum áhugasömum. Ókeypis er í mótið og engin verðlaun verða veitt. Bara hafa gaman.
Nánari upplýsingar um mótið gefur Hermann í síma 8213187
