Hilmar Freyr Birgisson (The Boss) Mynd: Hallfríður Sigurðardóttir
Fjórir mættu á skákæfingu sl. mánudagskvöld sem var talsvert undir væntingum. Þó var tefld einföld umferð með 15 mín tímamörkunum.
Svo frá að Hilmar Freyr Birgisson vann allar skákir þrjár. Ævar Ákason, Sigubjörn Ásmundsson og Hermann Aðalsteinsson fengu einn vinning hver.
Eftir æfinguna var komandi deildarkeppni í skák rædd og allt stefnir í að Goðinn mætir með 3 sveitir til leiks í ár.
