Keppni í opnum flokki á Haustmóti TR lauk í dag. Svo vildi til að þeir bræðir Lárus Sólberg og Ingi Hafliði Guðjónssynir mættust í lokaumferðinni og endaði skákin með jafntefli. Báður fengu þeir 3,5 vinninga en Lárus varð örlítið hærri á oddastigum og endaði í 18. sæti en Ingi í 21. sæti.
Helgi Fannar Óðinsson, sem er aðeins 8 ára gamall, vann flokkinn með 7 vinningum af 9 mögulegum. Ljóst er að hann á framtíðina fyrir sér við skákborðið.
