Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2559) gerði jafntefli við Deyri Cori (2421), stórmeistara kvenna í níundu og næstsíðustu umferð Benasque-mótsins á Spáni.

Hjörvar hefur 6,5 vinning og er í 12.-40. sæti. Í lokaumferðinni sem hófst kl 7. í morgun teflir Hjörvar við ástralska alþjóðlega meistarann Justin Tan (2417).

Skákin má sjá hér í beinni.

Uppfært kl 11:00.

Hjörvar vann skákina í lokaumferðinni eins og sjá má hér fyrir neðan. Frammistaða Hjörvars samsvaraði 2580 skákstigum og hækkar hann um 8 stig fyrir hana. Hjörvar hefur því endurheimt annað sæti Íslendinga á stigalista FIDE.