Hjörvar sigraði á hraðkvöldi hjá GM Helli

Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði á hraðkvöldi GM Hellis sem fram fór 17.  febrúar sl. Hjörvar fékk 6,5v í sjö skákum og kom jafnteflið í þriðju umferð í skák við Eirík Björnsson. Í öðru sæti var Elsa María Kristínardóttir með 6v og þriðji var svo Eiríkur Björnsson með 5,5v en þau þrjú voru nokkuð afgerandi á þessu hraðkvöldi. Hjörvar fékk að draga í happdrættinu í lok hraðkvöldsins og tókst þá að draga Hörð Aron vin sinn og fá þeir báðir gjafamiða á Saffran.

Á næstu æfingu í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a sem verður mánudaginn 24. febrúar kl. 20 verður atkvöld.

Lokastaðan á hraðkvöldinu:

Röð Nafn Vinn. TB1 TB2 TB3
1 Hjörvar Steinn Grétarsson  6,5 22,8 0 6
2 Elsa María Kristínardóttir  6 20 0 6
3 Eiríkur K. Björnsson  5,5 15,8 0 5
4 Hörður Aron Hauksson  4 9,5 1 4
5 Björgvin Kristbergsson  4 9,5 0 3
6 Hörður Jónasson 3 7,5 0 2
7 Vigfús Vigfússon  3 7 0 2
8 Sverrir Sigurðsson  3 6,5 0 2
9 Hjálmar Sigurvaldason  2,5 5,25 0 1
10 Gunnar Nikulásson  2,5 4,75 0 1
11 Finnur Kr. Finnsson  2 3,5 0 0