huginn_small_blattHraðkvöld Hugins verður mánudaginn 30. mars nk.  og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Í vetur verða svo hraðkvöldin fyrsta og síðasta mánudaga í hverjum mánuði að því undanskildu þegar mánudag ber upp á stórhátíð.

Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).