Páskaskákmót Hugins á norðursvæði fer fram laugardagskvöldið 28. mars í Framsýnarsalnum Garðarsbraut 26 á Húsavík Mótið hefst kl 20:00 og lýkur fyrir kl 23:00.
Tímamörk eru 10 mín + 5 sek á leik og tefldar verða 7 umferðir (swiss-manager) Mótið verður reiknað til fide-atskákstiga Þátttökugjald er kr 500.
Páskaegg í verðlaun fyrir þrjá efstu í fullorðinsflokki og U-16 ára flokki. Sigurvegarinn fær farandbikar. Aðeins félagsmaður í Huginn getur orðið páskameistari.
Mótið er opið öllum áhugasaömum á öllum aldri.