Ný kennimerki Hugins

hugin_stort4litjpgHraðkvöld Hugins sem frestað var 7. desember sl. vegna óveðurs verður mánudaginn 14. desember nk.  og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Þetta er síðasta skákkvöld ársins hjá Huginn en næst verður atkvöld mánudaginn 4. janúar 2016.

Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).