19.12.2012 kl. 16:27
Hraðskákmót Goðans-Máta verður 28. desember
Hraðskákmót Goðans-Máta 2012 verður haldið í áttunda skipti, föstudagskvöldið 28 desember á Húsavík. Mótið fer fram í Framsýnar-salnum að Garðarsbraut 26 og hefst stundvíslega kl 20:00.

Reiknað er með því að mótslok verði um kl 23:00.
Tefldar verða 11 umferðir eftir monrad-kerfi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin, auk farandbikars fyrir sigurvegarann. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í yngri flokki (16 ára og yngri)
Núverandi hraðskákmeistari Goðans-Máta er Jakob Sævar Sigurðsson.
Þátttökugjald er 500 krónur fyrir alla keppendur
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til keppni hjá formanni lyngbrekku@simnet.is eða í síma 4643187 8213187
