Þröstur Þórhallsson, Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson og Þorsteinn Þorsteinsson liðsstjóri

Það voru einbeittir liðsmenn Hugins sem mættu til leiks í dag og unnu öruggan sigur á Bolvíkingum með 52,5 vinningum gegn 19,5 vinningum í úrslitum hraðskákkeppni taflfélaga.

Þröstur Þórhallsson, Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson og Þorsteinn Þorsteinsson liðsstjóri
Þröstur Þórhallsson, Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson og Þorsteinn Þorsteinsson liðsstjóri

 

Helgarnir í liði Hugins fóru mikinn og slepptu einungis einum vinningi hvor. Þröstur, Stefán og Magnús Örn voru einnig allir mjög drjúgir. Jóhann Hjartarson stóð upp úr liði Bolvíkinga með 9 vinninga í 12 skákum.

 

Árangur einstakra liðsmanna Hugins
Helgi Ólafsson 11/12
Þröstur Þórhallsson 9,5/12
Stefán Kristjánsson 9/12
Helgi Áss Grétarsson 8/9
Magnús Örn Úlfarsson 8/12
Aðrir minna

 

 

 

Árangur liðsmanna Bolvíkinga.

Jóhann Hjartarson 9/12
Jón L Árnason 3/12
Dagur Arngrímsson 2,5/12
Aðrir minna