29.12.2013 kl. 04:12
Íslandsmótið í netskák fer fram 29. desember
Íslandsmótið í netskák fer fram, sunnudaginn 29. desember á ICC og hefst kl. 20. Mótið er öllum opið og er teflt er einum flokki. Skráning fer fram hér á heimasíðu GM Hellis og á Skák.is. Upplýsingar um skráða keppendur er að finna hér.
Allt skráningarferlið er sjálfkrafa og eina sem þátttakendur þurfa að hafa í huga er að vera mættir tímanlega á ICC eða eigi síðar en kl. 19:50. Tímamörk eru 4 2 (4 mínútur + 2 viðbótarsekúndur á hvern leik).
Þeir sem ekki eru skráðir á ICC geta skráð sig á vef ICC en ekki þarf að greiða fyrir fyrstu vikuna. Að því loknu er hægt að skrá sig á Skák.is. Þeir sem ekki hafa hugbúnað til að tefla geta halað niður þar til gerðu forrit (mælt er með Blitzin eða Dasher). Einnig er hægt að tefla í gegnum java-forrit. Þar sem allir keppendur þurfa að vera á svokallaðri Íslands-rás er æskilegt að menn slái inn „g-join Iceland“ við næstu/fyrstu innskráningu á ICC.
Davíð Kjartansson er Íslandsmeistari í netskák
Verðlaun:
1. kr. 10.000
2. kr. 6.000
3. kr. 4.000
Aukaverðlaun:
Undir 2200 skákstigum (miðað við nýjustu íslensku skákstig):
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Undir 2000 skákstigum (miðað við nýjustu íslensku skákstig):
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Undir 1800 skákstigum (miðað við nýjustu íslensku skákstig):
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Stigalausir:
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Unglingaverðlaun (15 ára og yngri):
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Kvennaverðlaun:
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Öldungaverðlaun (50 ára og eldri):
- 1. Fjórir frímánuðir á ICC
- 2. Tveir frímánuðir á ICC
Happdrætti:
- Tveir keppendur sem klára mótið og fá ekki verðlaun eða aukaverðlaun verða dregnir út og fá 3 frímánuði á ICC.