Jafntefli og tap á haustmóti TR.

Barði Einarsson gerði jafntefli við Hörð Aron Hauksson og Jakob Sævar tapaði fyrir Ólafi Gísla Jónssyni í 5. umferð á haustmóti TR sem fram fór í kvöld.

Barði er sem fyrr í efsta sæti D-flokks með 3,5 vinninga ásamt Rafni Jónsyni. (Barði á inni óteflda skák við Rafn). Í 6. umferð sem tefld verður á föstudag, teflir Barði, með hvítu mönnunum, við Svanberg Má Pálsson (1751)

Jakob er í neðsta sæti C-flokks með 0,5 vinninga. Í 6. umferð teflir Jakob, með hvítu mönnunum, við Óttar Felix Hauksson.   H.A.