5.11.2008 kl. 23:58
Smári efstur á æfingu.
Smári Sigurðsson varð efstur með 5 vinninga af 5 mögulegum á skákæfingunni sem fram fór á Húsavík í kvöld. Tefldar voru 5 umferðir eftir monrad-kerfi og var umhugsunartíminn 10 mín á mann. Alls mættu 13 keppendur til leiks og þar af voru 5 efnilegir grunnskólanemendur úr Borgarhólsskóla.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. Smári Sigurðsson 5 vinn af 5
2. Baldvin Þ Jóhannesson 4
3. Hermann Aðalsteinsson 3,5 (13 stig)
4. Sigurjón Benediktsson 3,5 (10stig)
5. Óttar Ingi Oddsson 3
6-7 Benedikt Þór Jóhannsson 2,5 (16,5 stig)
6-7 Heimir Bessason 2,5 (16,5 stig)
8. Hallur B Reynisson 2 (14,5 stig)
9. Snorri Hallgrímsson 2 (12,5 stig)
10. Hlynur Snær Viðarsson 2 (11,5 stig)
11. Sighvatur Karlsson 2 (10,5 stig)
12. Valur Heiðar Einarsson 2 ( 7,5 stig)
13. Egill Hallgrímsson 1
Næsta skákæfing verður í Litlulaugaskóla í Reykjadal miðvikudaginn 12 nóvember kl 20:30. H.A.