Þegar einni skák er ólokið í Vestur-riðli skákþings Goðans 2024 er Jakob Sævar Sigurðsson efstur með 5 vinninga af 6 mögulegum og er með hálfs vinnings forskot á Rúnar Ísleifsson. Jakob Sævar hefur lokið sínum skákum en Rúnar á eftir eina skák, gegn Inga Hafliða Guðjónssyni, sem vermir 3. sætið með 4 vinninga. Það liggur því fyrir að skák Rúnars og Inga Hafliða ræður úrslitum í riðlinum, en hún er á dagskrá á mánudaginn kl 19:30 á Laugum.
Staðan í riðlinum.
Jakob Sævar Sigurðsson 5 vinn
Rúnar Ísleifsson 4,5 (1 skák eftir)
Ingi Hafliði Guðjónsson 4 (1 skák eftir)
Ingimar Ingmarsson 3
Ævar Ákason 2
Hermann Aðalsteinsson 1,5
Sigurbjörn Ásmundsson 0
Tvær skákir fóru fram í gærkvöld. Jakob Sævar vann Sigurbjörn Ásmundsson og Rúnar Ísleifsson vann Ingimar Ingimarsson.