Snorri, Kristján og Ari
Snorri, Kristján og Ari

Kristján Davíð Björnsson úr Stórutjarnaskóla og Kristján Ingi Smárason úr Borgarhólsskóla urðu sýslumeistarar í skólaskák í dag, en sýslumótið fór fram á Laugum.

 

Kristján Davíð vann alla sína andstæðinga í eldri flokki og endaði með 4 vinninga í 1. sæti. Snorri Már Vagnsson varð í 2. sæti með 3 vinninga og Ari Ingólfsson varð í 3. sæti með 2 vinninga. Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann í eldri flokki.

 

Lokastaðan í eldri flokki.

  1. Kristján Davíð Björnsson     4 af 4
  2. Snorri Már Vagnsson           3
  3. Ari Ingólfsson                       2
  4. Stefán Bogi Aðalsteinsson  1
  5. Heiðrún Harpa Helgadóttir   0

 

 

Eyþór, Kristján og Ívar

 

Kristján Ingi Smárason vann sigur í yngri flokki með 4 vinninga af 5 mögulegum. Eyþór Rúnarsson varð í 2. sæti með 3,5 vinninga og bróðir hans Ívar Rúnarsson, varð í 3. sæti með 3 vinninga. Tefldar voru 5 umferðir í yngri flokki eftir monrad-kerfi og var umhugsunartíminn 10 mín á skák.

 

 

 

 

Lokastaðan í yngri flokki:

  1. Kristján Ingi Smárason             4  af 5
  2. Eyþór Rúnarsson                     3,5
  3. Ívar Rúnarsson                         3
  4. Pétur Friðrik Jónsson               3
  5. Halldór Björke Helgason          3
  6. Magnús Máni Sigurgeirsson    2,5
  7. Ingþór Tryggvi Ketilsson          2,5
  8. Marge Alavere                         2,5
  9. Björn Rúnar Jónsson               1

Þrír efstu í báðum flokkum unnu sér keppnisrétt á Kjördæmismótinu í skólaskák sem fer væntanlega fram síðasta vetrardag, 19. apríl á Laugum.

Eldri flokkurinn að tefla í dag

 

 

 

Yngri flokkurinn að tefla í dag.