Hjörvar Steinn Grétarsson sem tefldi fyrir Lyfjaval í Mjódd sigraði örugglega með fullu húsi 7v af sjö mögulegum á Mjóddarmótinu sem fram fór laugardaginn 1. júlí sl. í göngugötunni í Mjódd Annar var Daði Omarsson með 6v sem tefldi fyrir Gámaþjónustuna. Gámaþjónustan var einnig í öðru sæti í fyrra en þá með annan keppanda við stýrið. Það var meiri slagur um þriðja sætið á mótinu en þar voru fjórir skákmenn jafnir í 3. – 6. sæti með 5v en það voru Hilmir Freyr Heimisson sem tefldi fyrir Hjá Dóra, Aron Þór Maí sem tefldi fyrir Suzuki bíla, Vignir Vatnar Stefánsson sem tefldi fyrir GM Einarsson múrarameistara og Júlíus Björnsson sem tefldi fyrir Eflingu stétttarfélag. Þeir Hilmir Freyr, Aron Þór og Vignir Vatnar eru allt ungir og efnilegir skákmenn sem eflaust munu vinna mótið síðar. Júlíus Björnsson hefur hins vegar ekki sést á móti hérna lengi enda býr hann erlendis og er hérna að heimsækja vini og ætttingja og notaði tækifærið og skellti sér á Mjóddarmótið. Annar keppandi sem kom langt að er Torin Kuehnle sem kemur fá Philadelphia í Bandaríkjunum og er hér í stuttu sumarleyfi.
Mjóddarmótið hefur ekki áður farið fram í júlí þannig að það var rennt nokkuð blint í sjóinn með þátttökuna. 33 skákmaður tók þátt sem er nokkuð nærri meðalþátttöku og verður að teljast harla gott miðað við núverandi aðstæður. Mótið var vel skipað blöndu af eldri og yngri skákmönnum. Af þeim sem tóku þátt höfðu Hjörvar, Daði og Bragi Halldórsson sem núna tefldi fyrir Reykjavíkurborg unnið mótið áður. Mótshaldið tókst vel þrátt fyrir tvær bilaðar klukkur, hrók á hvolfi og ólöglega leiki og má segja að engin ágreiningsefni hafi komið upp fyrr en í lokin þegar bæði Róbert Lagerman sem tefldi fyrir ÍTR og Júlíus Björnsson töldu sig hafa unnið í lokaumferðinni þótt þeiri hefðu átt að tefla innbyrðis. Við ahugun kom í ljós að þeir höfðu alls ekki teflt saman heldur tefldi Róbert við Braga Halldórsson og Júlíus við Alexander Oliver Mai, Ökuskólinn í Mjódd. Málið var bara leyst með því að leiðrétta pörun lokaumferðar miðað við hvernig hún var tefld. Þetta má eflaust skrifa á það hve bjart var í Mjóddinni þótt það væri skýjað þannig að pörunin sem varpað var á hvítan vegginn í Mjóddinni sást ekki alstaðar vel. Að vísu var hún einnig lesin upp en það virðist ekki hafa dugað til í þessu tilviki. Það má svo velta fyrir sér hvort mistökin hefðu nokkuð uppgötvast ef Alexander Oliver hefði unnið Júlíus.
Skákfélagið Huginn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og fyrirtækjunum fyrir þeirra framlag til mótsins. Sjáumst að ári.
Lokastaðan á Mjóddarmótinu:
Röð | Nafn | Stig | Fyrirtæki | Vinn. | BH. |
1 | Hjörvar Steinn Grétarsson | 2567 | Lyf og heilsa, Mjódd | 7 | 32 |
2 | Daði Ómarsson | 2193 | Gámaþjónustan | 6 | 33½ |
3 | Hilmir Freyr Heimisson | 2188 | Hjá Dóra | 5 | 32 |
4 | Aron Þór Mai | 1950 | Suzuki bílar | 5 | 28 |
5 | Vignir Vatnar Stefánsson | 2103 | GM Einarsson múrarameistari | 5 | 28 |
6 | Július Björnsson | 1825 | Efling Stéttarfélag | 5 | 27½ |
7 | Eirikur K. Björnsson | 1919 | Íslandspóstur | 4½ | 30 |
8 | Róbert Lagerman | 2301 | ÍTR | 4½ | 29 |
9 | Bragi Halldórsson | 2098 | Reykjavikurborg | 4 | 29 |
10 | Alexander Oliver Mai | 1850 | Ökuskólinn í Mjódd | 4 | 28½ |
11 | Halldór Ingi Kárason | 1799 | 4 | 28½ | |
12 | Sigurður Daði Sigfússon | 2228 | Frú Sigurlaug | 4 | 28½ |
13 | Gunnar Björnsson | 2102 | Guðmundur Arason ehf | 4 | 26 |
14 | Magnús Magnússon | 2005 | Íslandsbanki | 4 | 25 |
15 | Stefan Bergsson | 2023 | Bv 60 | 4 | 24 |
16 | Torin Kuehnle | 1661 | 4 | 24 | |
17 | Páll Þórsson | 1700 | Sorpa | 4 | 23 |
18 | Sigurður Ingason | 1774 | Lyfjaval í Mjódd ehf | 3½ | 21½ |
19 | Óskar Haraldsson | 1784 | Landsbanki Íslands | 3 | 27½ |
20 | Stefán Orri Davíðsson | 1407 | Valitor | 3 | 26 |
21 | Elvar Örn Hjaltason | 1772 | 3 | 25 | |
22 | Óskar Vikingur Davíðsson | 1786 | Nettó í Mjódd | 3 | 22 |
23 | Benedikt Þórisson | 0 | 3 | 21½ | |
24 | Konráð K Bjorgólfsson | 0 | 3 | 18½ | |
25 | Árni Ólafsson | 1251 | 3 | 18 | |
26 | Björgvin Kristbergsson | 1212 | 2½ | 21 | |
27 | Finnur Finnsson | 0 | 2½ | 21 | |
28 | Soffía Berndsen | 0 | 2½ | 20½ | |
29 | Batel Goitom Haile | 1270 | 2 | 21½ | |
30 | Sigurjón Ólafsson | 0 | 2 | 19 | |
31 | Bjartur Þórisson | 0 | 2 | 18½ | |
32 | Pétur Jóhannesson | 1015 | 2 | 14½ | |
33 | Anna Katarína Thoroddsen | 0 | 1 | 17½ |
Lokastaðan í chess-results.
[dt_divider style=”thick” /]