Meistaramót Hugins (suðursvæði) 2017 hefst miðvikudaginn 23. ágúst klukkan 19:30. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót sem lýkur 2. október. Leyft verður að taka 2 yfirsetur í 1.- 6. umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði. Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra og íslenskra skákstiga. Skráning í mótið er á skak.is en einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í skákstjóra s-866-0116 (Vigfús).

Mótið hefst á miðvikudegi en aðrir skákdagar eru á mánudögum nema lokaumferðin sem verður á fimmtudegi. Að þessu sinni verður aðeins ein umferð í hverri viku. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Aðalverðlaun:

50.000
40.000
30.000

Aukaverðlaun (miðað er við alþjóðleg skákstig)

  • Skákmeistari Hugins (suðursvæði): Kr. 10.000.
  • Besti árangur undir  2000 skákstigum:  Skákbók hjá skákbókasölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur undir 1800 skákstigum:  Skákbók hjá skákbókasölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur undir 1600 skákstigum: Skákbók hjá skákbókasölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur stigalausra: Skákbók hjá skákbókasölunni að verðmæti kr. 5.000.
  • Unglingaverðlaun (15 ára og yngri), skákbækur hjá skákbókasölunni að verðmæti: 1.vl. kr. 5.000, 2. og 3.vl. kr. 4000.

Þátttökugjöld:

Félagsmenn kr. 3.500; aðrir 4.500-
Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.000; Aðrir 3.000.
Allir titilhafar fá frítt í mótið

Umferðartafla:

  • 1. umferð, miðvikudaginn, 23. ágúst, kl. 19:30
  • 2. umferð, mánudaginn, 28. ágúst, kl. 19:30
  • 3. umferð, mánudaginn, 4. september, kl. 19:30
  • 4. umferð, mánudaginn, 11. september, kl. 19:30
  • 5. umferð, mánudaginn, 18. september, kl. 19:30
  • 6. umferð, mánudaginn, 25. september, kl. 19:30
  • 7. umferð, fimmtudagur, 5. október, kl. 19:30