B-flokkur Meistaramóts Hugins (suðursvæði) 2015 hefst mánudaginn 24. ágúst klukkan 18:00. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót sem lýkur 8. september (A-flokki líkur 7. september). Leyft verður að taka 1 yfirsetu í 1.-5. umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Umhugsunartíminn verður 45 mínútur+30 sek. á leik í B-flokki. Þeir sem eru undir 1600 sigum geta valið hvort þeir fara í A- eða B-flokk.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra og íslenskra skákstiga. Skráning í mótið er á skák.is og á skakhuginn.is en einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í skákstjóra s-866-0116 (Vigfús). Upplýsingar um skráða keppendur eru hér: Teflt er á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.

Verðlaun:

1. verðlaun skákbók hjá Sigurbirni að verðmæti kr. 5.000,
2. verðlaun skákbók hja Sigurbirni að verðmæti kr. 4000.
3. verðlaun skákbók hjá Sigurbirni að verðmæti kr. 4000.

Þátttökugjöld:

Félagsmenn kr. 3.500; Aðrir 4.500

Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.000; Aðrir 3.000.

Umferðartafla:

1. umferð, mánudaginn, 24. ágúst, kl. 18:00

2. umferð, þriðjudaginn, 25. ágúst, kl. 18:00

3. umferð, fimmtudaginn, 27. ágúst, kl. 18:00

4. umferð, mánudaginn, 31. ágúst, kl. 18:00

5. umferð, þriðjudaginn, 1. september, ágúst, kl. 18:00

6. umferð, fimmtudaginn, 3. september, kl. 18:00

7. umferð, þriðjudaginn, 8. september, kl. 18:00 (Bara B-flokkur)