Meistaramót Hugins (suðursvæði) 2014 hefst mánudaginn 25. ágúst klukkan 19:30. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a. Mótið er 8 umferða opið kappskákmót sem lýkur 9. september.   Leyft verður að taka 2 yfirsetur í 1.-6 umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði.  Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.  Skráning verður hér á Skákhuganum og á skáksíðunni og fer í gang fljótlega.

Teflt er á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.

Aðalverðlaun:

  1. 50.000
  2. 40.000
  3. 30.000

Upplýsingar um aukaverðlaun koma síðar.

Þátttökugjöld:

  • Félagsmenn kr. 3.500; aðrir 4.500-
  • Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.500; Aðrir 3.500.
  • Allir titilhafar fá frítt í mótið

Umferðartafla: 

  • 1. umferð, mánudaginn, 25. ágúst, kl. 19:30
  • 2. umferð, þriðjudaginn, 26. ágúst, kl. 19:30
  • 3. umferð, miðvikudaginn, 27. ágúst, kl. 19:30
  • 4. umferð, mánudaginn, 1. september, kl. 19:30
  • 5. umferð, þriðjudaginn, 2. september, ágúst, kl. 19:30
  • 6. umferð, miðvikudaginn, 3. september, kl. 19:30
  • 7. umferð, mánudaginn, 8. september, kl. 19:30
  • 8. umferð þriðjudaginn, 9. september, kl. 19:30