Hermann formaður býður Hjörvar velkominn í Huginn
Hermann formaður býður Hjörvar velkominn í Huginn

Hraðskákmót Hugins í Mjóddinni verður haldið fimmtudaginn 21. ágúst nk. og hefst það kl. 20.00. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a. Stefnt er að því að reikna mótið til hraðskákstiga. Heildarverðlaun á mótinu er kr. 20.000.  Tefldar verða 7 umferðir 2*5 mínútur.  Núverandi hraðskákmeistari Hellis er Hjörvar Steinn Grétarsson. Þetta er í nítjánda sinn sem mótið fer fram.  Björn Þorfinnsson og Davíð Ólafsson hafa hampað titlinum oftast eða fjórum sinnum.

Verðlaun skiptast svo:

  1. 10.000 kr.
  2. 6.000 kr.
  3. 4.000 kr.

Þátttökugjöld eru kr. 400 fyrir félagsmenn en kr. 600 fyrir aðra. Fyrir unglinga í Huginn eru þau kr. 300 en kr. 400 fyrir aðra.

Hraðskákmeistarar Hellis:

  • 1995: Davíð Ólafsson
  • 1996: Andri Áss Grétarsson
  • 1997: Hannes Hlífar Stefánsson
  • 1998: Bragi Þorfinnsson
  • 1999: Davíð Ólafsson (Jón Viktor Gunnarsson sigraði á mótinu)
  • 2000: Bragi Þorfinnsson
  • 2001: Helgi Áss Grétarsson
  • 2002: Björn Þorfinnsson
  • 2003: Björn Þorfinnsson
  • 2004: Sigurbjörn J. Björnsson
  • 2005: Sigurður Daði Sigfússon
  • 2006: Hrannar Baldursson
  • 2007: Björn Þorfinnsson (Jón Viktor Gunnarsson sigraði á mótinu)
  • 2008: Gunnar Björnsson
  • 2009: Davíð Ólafsson
  • 2010: Björn Þorfinnsson
  • 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2012: Davíð Ólafsson
  • 2013: Hjörvar Steinn Grétarsson