Meistaramót Hugins (suðursvæði) 2014 hefst mánudaginn 25. ágúst klukkan 19:30. Mótið er 8 umferða opið kappskákmót sem lýkur 9. september. Leyft verður að taka 2 yfirsetur í 1.-6. umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði. Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Teflt er á mánudögumþriðjudögum og miðvikudögum.

Aðalverðlaun:

50.000
40.000
30.000

Aukaverðlaun (miðað er við alþjóðleg skákstig)

  • Skákmeistari Hugins (suðursvæði): Kr. 10.000.
  • Besti árangur undir  2000 skákstigum:  Skákbók hjá Sigurbirni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur undir 1800 skákstigum:  Skákbók hjá Sigurbirni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur undir 1600 skákstigum: Skákbók hjá Sigurbirni að verðmæti kr. 5.000.
  • Besti árangur stigalausra: Skákbók hjá Sigurbirni að verðmæti kr. 5.000.
  • Unglingaverðlaun (15 ára og yngri), skákbækur hjá Sigurbirni að verðmæti: 1.vl. kr. 5.000, 2. og 3.vl. kr. 4000.

Þátttökugjöld:

Félagsmenn kr. 3.500; aðrir 4.500-
Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.500; Aðrir 3.500.
Allir titilhafar fá frítt í mótið

Umferðartafla:

  • 1. umferð, mánudaginn, 25. ágúst, kl. 19:30
  • 2. umferð, þriðjudaginn, 26. ágúst, kl. 19:30
  • 3. umferð, miðvikudaginn, 27. ágúst, kl. 19:30
  • 4. umferð, mánudaginn, 1. september, kl. 19:30
  • 5. umferð, þriðjudaginn, 2. september, ágúst, kl. 19:30
  • 6. umferð, miðvikudaginn, 3. september, kl. 19:30
  • 7. umferð, mánudaginn, 8. september, kl. 19:30
  • 8. umferð þriðjudaginn, 9. september, kl. 19:30