Nóvemberskákmót Goðans 2023 fer fram fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl 20:00 í Framsýnarsalnum á Húsavík. Tímamörk verða 5 mín +2 sek/leik og við reiknum með að mótið verði allir við alla (round robin).

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga hjá FIDE. Mótið verður þó ekki reiknað til stiga fyrir en 1. janúar 2024. Verði mikil þátttaka í mótinu verður því hugsanlega breytt í swiss-mót. Ókeypis er í mótið og engin verðlaun veitt. Bara hafa gaman.

Keppendur skrá sig sjálfir í mótið og er það gert með einföldum hætti hér fyrir neðan. ( Bara að skrá nafn og netfang, en netfangið mun ekki sjást)

Skráning í mótið.
Listi yfir skráða keppendur á chess-manager.