24.12.2009 kl. 15:49
Ný Atskákstig.
Ný atskákstig voru gefin út í gær. þau gilda 1. desember sl. Nokkuð miklar breytingar eru á stigum félagsmanna. Hermann hækkar mest allra félagsmanna, eða um 100 stig. Sigurbjörn hækkar um 40 stig og Jakob um 35 stig. Heimir, Einar Garðar og Rúnar hækka líka á stigum.
Nafn Atskákstig 1.des 09 breyting (+/-)
Ármann Olgeirsson 1465 (-50)
Einar Garðar Hjaltason 1635 (+15)
Erlingur Þorsteinsson 2070 (-20)
Heimir Bessason 1630 (+25)
Hermann Aðalsteinsson 1560 (+100)
Jakob Sævar Sigurðsson 1720 (+35)
Rúnar Ísleifsson 1720 (+10)
Sigurbjörn Ásmundsson 1305 (+40)
Smári Sigurðsson 1815 (-10)
Ævar Ákason 1605 (-40)
Forstig.
Valur Heiðar Einarsson er skráður með 1365* forstig eftir 4 reiknaðar skákir
Hlynur Snær Viðarsson er skráður með 1145* forstig eftir 7 reiknaðar skákir.
Hlyn vantar því aðeins 2 skákir í viðbót til þess að fá sín fyrstu atskákstig en Val vantar 5 skákir.
15 mín skákmót Goðans og 1-3 umferð í Haustmótinu voru reiknuð til stiga auk atskákmót Bolungarvíkur, en þar tefldi Einar Garðar.
Atskákstig allra félagsmann má sjá hér : http://www.godinn.blog.is/blog/godinn/entry/856236/