Ádám Gulyás
Ný skákstig voru gefin út 1. maí sl. Ádám Gulyás hækkar mest af okkar mönnnum eða um 20 stig og fer í 1743 stig. Ævar Ákason hækkar um 15 stig og fer í 1560. Aðrir lækka eða standa í stað. Eina reiknaða kappskakstigamótið sem hefur áhrif á okkar menn var Reykjavík Open.
29 félagsmenn hafa kappskákstig, en mun fleiri hafa atskák eða hraðskákstig.
