Hilmar Freyr Birgisson (The Boss) Mynd: Hallfríður Sigurðardóttir
Hilmar Freyr Birgisson varð efstur á skákæfingu sem fram fór sl. mánudagskvöld á Húsavík. Hilmar fékk 4,5 vinninga af 5 mögulegum. Hilmar átti afmæli sl. mánudag og því tilvalið að halda upp á daginn með þessum hætti. Hermann Aðalsteinsson kom næstur með 4 vinninga og Viðar Njáll Hákonarson varð þriðji með 2,5 vinninga. Sigurbjörn Ásmundsson og Kristján Ingi Smárason fengu 2 vinninga og Paula úr Mývatnssveit náði ekki á blað en þó munaði ekki miklu.

Sigurbjörn Ásmundsson varð svo efstur á aukaskákæfingu sem fram fór kvöldið eftir með fullu húsi, 5 af 5. Hilmar kom næstur með 4 og Hermann fékk 3. Þrír skákmenn úr Mývatnssveit röðuðu sér svo í þrjú neðstu stætin.
Næsta skákæfing er á áætlun 4. maí.
